Þóra Björg

Þóra Björg

11.04.2007 09:41:43 / torabjorg

11. apríl

Sérstakt að ég skuli liggja uppí núna þar sem páskafríið er búið og skólinn víst farinn í gang. En jújú maður er svo heppinn bastarður að ég er enn í fríi, allveg fram á næsta mánudag. Ég segi samt kannski ekki fríi þar sem það er mótaröð í gangi, frá mánudegi til laugardags sem er reyndar geggjað.  

Bloggleysi stafar af því að ég hef verið heima í borg óttans og þar er talvan í hassi. En það var illa gott að fara heim. Gaman að sjá Ollu sys. Gerði reyndar ekki shit. Lærdómurinn sem átti að vera í hámarki var auðvitað í algjöru lámarki. Ég gat að sjálfsögðu ekki drullast til að opna bók. Lá mestan part tímans upp í sófa að glápa á sjónvarpið, en það var góð tilbreyting þar sem ég hef ekki haft tíma til þess síðan í jólafríinu.  

Svo voru já mót í gær og fyrradag í rvk sem gengu ekki nógu vel. Ég ætla víst ekki að drullast til að eiga tvær góðar ferðir. Eins og fyrri ferðin gekk vel í báðum mótunum var seinin ferðin jafn léleg. Eins gott að ég lagi þetta núna í síðasta lagi í dag. En við keyrðum svo heim beint eftir mót í gær og svo er mót hér í dag og fram á laugardaginn. Ég læt lífið ef ég á ekki að minnsta kosti tvö góð mót!  

Það verður svo agalegt laugardagskvöldið. Kvöld sem menn eru búnir að bíða eftir í all langan tíma. Og auðvitað allir skólar landsins að mæta í bæinn. Þetta verður agalegt. 

Jæja, er farin að horfa á melrose og svo preppa. Óskið mér góðs gengis á eftir lovers.
Bless, Þóra.


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 20:57:39 / torabjorg

27. mars

Það er löngu kominn tíma á að ég hætti að grenja í gegnum blogg. Sérstakt að skrifa alltaf jafn ömurleg blogg. En nú eru breyttir tímar. (vonandi!)

 

Þessi vika verður svo góð. Páskafríið að nálgast, Olla líka að nálgast og ég að halda heim. Þetta gerist ekki mikið betra. Gærdagurinn var góður. Féll í fyrsta stærðfræðiprófinu á ferlinum. Reyndar ekki búin að fá út úr því, en get með sanni sagt að ég hafi ekkert getað. Það eina sem ég gat var ein 40% sönnun og gat hana bara vegna þess að ég var með hana skrifaða fyrir framan mig! En mér var svo skítsama um þetta próf.

 

En ég er líka búin að ákveða það að læra ekkert í þessari viku. Það gengur fínt enda engin próf eða neitt. Ekkert smá agalega gott að koma bara heim af æfingu og vita að maður ætli ekkert að gera. Við Lilja skelltum okkur einmitt á kaffihús í gærkvöldi. Það var illa gott. Slúðruðum sem aldrei fyrr og helvíti gott slúður í þetta skiptið.

 

Ég fékk tillögu að blogga um ástina. Verst að ég veit ekki hvað ást er. Jújú ég elska auðvitað mömmu og pabba og Ólöfu og Ásthildi og ömmu og afa og allt þetta. En samt. Ég hef aldrei elskað neinn þannig lagað. Mig langar að prófa. Af hverju fá bara sumir. Ég ætti nú kannski ekki að vera að stressa mig á þessu þar sem ég er nú bara 17 ára. Enda trúi ég því svosum ekki að 16, 17 ára pör séu virkilega ástfangin. Allavega held ég að það sé þá einstakt. Ég trúi að það sé hægt að vera mjög hrifinn en kannski ekki beint ástfanginn. Mér finnst ást svo stórt. Svo mikið. En ég hef líka enga trú á því að ég egi aldrei eftir að elska. Ég er bara slök í þessum málum, enda allt lífið framundan.

 

Æji nenni ekki meiru. Þetta var nú ekki beint hresst blogg. Ég greinilega bara ekki svo hress chick. Sjitt ég er gjörsamlega að missa allt niðrum mig í þessum bloggum núorðið

Kveð að sinni, Þóra chick

» 8 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 00:58:27 / torabjorg

21. mars

Ég get eiginlega ekki annað en afsakað þetta klúður. Þetta helvítis password. En þetta er bara tímabundin lausn til að hylma yfir leynimakki sem er í gangi.  

Ég er svo klikkuð þessa dagana. Menn ættu nú kannski að þekkja það, sumir hverjir. Skólinn er til dæmis að kæfa mig. Við erum að tala um 6 próf í einni viku. Verð aðeins að segja hvað Verzló er betri en MA, því þar er bannað að hafa fleiri en 2-3 próf í viku! MA fokk. Æji ég er svo eitilhörð. En samt sem áður finnst mér frekar kjánalegt að hafa svona nánast ekkert að gera í nokkrar vikur og henda svo bara öllu á okkur á einni viku. Hver stendur á bak við þetta?  

Ég veit svosum ekki yfir hverju fleiru ég er klikkuð. Utan við það jú sem er helst á dagskrá að páskafríið er næstum ónýtt. Olla bjargar því þó. Helvítis fokk. Æji samt hlakkar mig svo geggjað mikið til að fara í páskafrí. Það verður svo agalega gott að vera heima að hanga. 

Hvað á það að þýða að enginn segji mér hvað er að vera emó? Ég er ekki nógu sátt með að fá engin svör við þessu þar sem mig virkilega langar til að vita þetta. Ég kannski spyr aftur í von um betri svör. Hvað er að vera emó? 

Gaman að segja frá því einmitt að ég fór suður að keppa um helgina. Lítið að segja frá mótinu þar sem ég datt og drap í leiðinni bakið og svo var seinna mótinu aflýst. En það var gott að fara heim og mamma auðvitað skellti sér með mér í Smáralind. Höfðum engan tíma svo við brunum inn í Zöru og ætli ég máti ekki svona um 20 boli. Ég gat keypt mér 2, og það voru 2 ljótustu bolirnir! Til hamingju. Annað hvort er það ég eða þá að sniðin í dag eru bara þroskaheft ( og það er allveg pottþétt ekki ég). En ég tek tilraun númer 2, og kannski 3 og 4 um páskana. Vonandi að það fari betur.  

Jæja, ég skelli inn svona eins og tvem þrem myndum og svo ætla ég að fara að sofa og dreyma vonandi á þýsku, ekki veitir af.

Góða nótt darlings.

 

Alli og ég sæt

 

Hot Chicks

 

Ég og Freggi agalega flott!

 

 

 

» 7 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 23:24:43 / torabjorg

Emó hvað?

Hvað er að vera emó? Andskotinn hafi það ég veit það ekki, ég hef réttara sagt ekki hugmynd um það. Menn gera ekki orðið annað en að kalla hina og þessa emó. En hverjir eru það sem eru emó? Eða hvað er það? Ég vil svör. Allavega virðist það vera trendið í dag að vera emó. Ég er greinilega ekki nógu mikið inn. 

Þetta var bara góð helgi. Föstudagurinn góður, gærdagurinn fínn og svo skellti ég mér á hestbak í dag. Það var ekkert smá gaman. Ég reyndar var næstum búin að láta lífið, eða þannig lagað, og eftir það var ég dáldið smeik. En þetta var samt mjög gaman. 

Ég fékk hinsvegar hræðilegustu fréttir lífs míns fyrir nokkrum dögum. Seinasta mótið, eða landsmótið átti að vera um næstu mánaðarmót. Mér semsagt búið að hlakka til að djamma um páskana og á Birtingu síðan ég veit ekki hvenar. Þeir draumar voru drepnir með þessum fréttum. Jú helvítis mótið var fært á fokking helgina sem Birting er! Þetta þýðir einfaldlega það að ég er hvorki að fara að djamma um páskana né þá helgi. Ég gæti grenjað, sálin er í molum.  

Svo er fleira sem er að rífa sálina, eða jafnvel hjartað í tætlur. Þetta líf er að fara með mig. Ég veit stundum ekki allveg hvað ég á að gera við sjálfa mig. 

En ég segi þetta gott í bili. Bless elskur.


» 15 hafa sagt sína skoðun

03.03.2007 19:44:00 / torabjorg

3.mars

Þá er ég mætt aftur. Gettu betur í gær. Fjandinn hafi þetta kjaftæði. Ég þóttist voða hörð fyrir keppnina. Vildi að Verzló inni til þess að sýna þessum MA-ingum (semsagt mér) í tvo heimana. Drullaði yfir MA-inga eins og mér einni er lagið og svo framvegis. Líður svo að keppni og mæti ég á svæðið. Um leið og ég steig fæti inn í höllina fór þetta allt að breytast hjá mér. Að sjálfsögðu hélt ég með mínum eigin skóla, ekki þessu gamla úrelta og var helvíti svekkt að hafa tapað. Ætli ég sé ekki eftir allt saman þessi MA-ingur sem ég þoli ekki. Sem finnst MA vera eini skólinn á landinu og ekki neinn annar skóli komast með tærnar þar sem við erum með hælana. Og þó, ég er ekki allveg á þessu. 

Það eru fleiri svekkelsi í gangi. Þessi helgi er ekki sú besta hingað til. Ég var að keppa í dag. Það má kannski taka það fram að það var í svigi sem er mín betri grein en ég hef samt sem áður ekki klárað eitt mót í vetur svo ég ætlaði mér að klára með stæl í dag. Ég fer í fyrri ferðina sem gengur bara nokkuð vel og kom niður með besta tímann. Helvíti ánægð. Legg svo af stað í seinni, staðráðin í að vinna þetta og gekk bara þrusu vel. En þá kem ég í þriðja seinasta portið, og jújú ég að sjálfsögðu hélt mig á fyrri braut og ákvað að skella mér á hausinn bara svona því ég var að komast í markið. Ég get svosum ekkert meira sagt um það annað en að ég hef sjaldan á ævinni verið jafn brjáluð! En það er annað mót á morgun, og það barasta verður fyrsta mótið sem ég klára.

Eini ljósi punkturinn sem ég get séð núna við helgina er að elskuleg móðir mín á afmæli. Ég get svosum drullað yfir það eins og allt annað og sagt að það sé ekki gott þar sem hún er orðin svo gömul. 

Þetta var án efa ömurlegasta blogg lífs míns. Er hætt þessu áður en ég sendi sjálfa mig í snöruna. 
Goodbye my lovers


» 8 hafa sagt sína skoðun

25.02.2007 16:19:21 / torabjorg

Elsku aðdáendur!

Vegna mikilla óláta, grenjs, eftirvæntingar og kallar á hjálp, þá hef ég ákveðið að taka upp fyrri störf sem bloggari. En það er jú bara fyrir ykkur aðdáendur góðir. Ég get með sanni sagt að ég hef ekki verið látin í friði síðan ég lagði upp laupana. Menn og konur hafa sífellt verið að grenja í mér og grátbeðið mig að hefjast handa við skriftir á ný. Að sjáfsögðu er ég er meiri maður í mér en það að svíkja þetta hjálparlausa fólk.  

En eins og ég hef að sjálfsögðu alltaf gert, þá lofa ég því að blogga af fyllstu hreinskilni og segja ekkert annað en sannleikann sjálfan. Ég er ekki þessi lygamörður eins og sumir. Þó svo ég stundi smá leynimakk annað slagið þá er það ekki ferill sem ég vil festa mig í. En ég lofa því þó ekki að ég verði dugleg að blogga, það er eitthvað sem tíminn þarf að leiða í ljós. 

Annars er fátt títt síðan seinast. Eina sem ég geri á daginn er skóli og æfing. Seinasta helgi var þó sú besta í langan tíma. Lilja og Erla héldu uppá afmælið sitt sem var geggjað! Ég skemmti mér svo vel! Annað ánægjulegt er það að ég er að fara til Danmerkur í sumar til ollu ásamt mömmu, ásthildi, ömmu og stínu frænku. Ég hlakka svo mikið til, og þá sérstaklega að hitta ollu og hafa ömmu með. Djöfulsins snilld verður það. 

Þessi helgi var ágæt. Ég er búim að hamsa nammi fyrir 640kr. auk þess sem ég er búin að muncha nachos með dýfu eins og mér sé borgað fyrir það. Svo borðaði ég jú pizzu í gærkvöldi, og þar með er fæðið fyrir helgina upp talið. Topp framistaða hjá mér!

Ég hef svosum ekki mikið meira að segja eins og stendur. Geri það við betra tækifæri, vildi bara með þessu bloggi lina þjáningar aðdáendanna.
Bið að heilsa í bili, Þóra.

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

18.01.2007 20:27:24 / torabjorg

Bless og takk

Fjandinn hafi það. Ég er hætt þessu fokki. Til hvers í fjandanum eyði ég tíma mínum í að skrifa e-ð ömurlegt blogg sem hvort sem er enginn les nema vinir mínir og þeir vita þetta mest allt fyrir?

Ég er allavega að reyna að segja að ég er hætt.

Bless og takk.

P.S. sorry Tinna að ég bregðist þér sem rithöfundur. Kannski ég bæti þér þetta upp í framtíðinni og skrifi dálk í moggann.


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.01.2007 22:57:06 / torabjorg

Nýtt ár - nýir tímar ?

Og þá varð það 2007. Það verður gaman að sjá hvað þetta ár ber í för með sér. Það sem ég vil mest af öllu sjá er heims friður! Tölum af alvöru, ég vil nokkra hluti á nýju ári. Ekki það að auðvitað vilji maður heimsfrið og svona shit en ég held maður geri sér bara gerin fyrir að það verður ekki í bráð. Bíddu, ég ætla að byrja á öðru. 2006 á undan. Þetta var gott ár. Helstu tíðindin eru sú að ég flutti að heiman og ég held ég geti ekki saknað þarna þessarar fjölskulda jafn mikið og ég geri! En þetta leggur maður á sig, á móti kemur auðvitað að ég þarf ekki að sakna Lilju og fleiri manna og kvenna. Nóg um þetta ár, maður á víst ekki að dvelja of mikið í fortíðinni. Spurning samt hvort þetta sé þó orðin nógu mikil fortíð fyrir það allt ?

Men snu os hvar jeg startede blogget. Året 2007. De fremtid (ég er að vona að ég sé orðin sýrð af dönsku, en því miður er ég bara að vona það). Ég er að kálast úr kærastaleysi. Mér hefur aldrei langað jafn mikið í kærasta, ég er ekki að fara eignast hann í bráð en mér langar í hann á nýja árinu. Fljótlega á nýja árinu, ég nenni ekki að slæpast um ein á báti, þetta er orðið þreytandi ástand. Einu myndirnar sem ég horfi á eru stelpumyndir með sjóðandi heitum gaurum. Hvað langar mig meira í á nýju ári. Jú ég vil að sjálfsögðu standa mig á skíðunum, og það ætla ég að gera. Ég vil líka fara til USA með ma og pa og ég ætla að láta þau taka mig með, sama hvað! Mig langar líka í bílpróf og bíl og stefni ótrauð á það í byrjun sumars! Ég ætla mér líka að vera á Ak um versló og áramótin. En ég man svosum ekki í bili hvað mig langar meira, enda er þetta svosum ágætt.

En þetta blogg var einungis tileinkað Lilju minni og engum öðrum. Ég bloggaði þetta fyrir hana. Reyndar var gott að losna undan lærdómnum en ég er svo mikill dugnaðar forkur að ég er búin að læra í allan dag! samt er hellingur eftir, djöfull.

En nóg um þetta kærastafokk og allt hitt draslið. Bless.


» 6 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 19:37:40 / torabjorg

Grenji

Kvöldið.

Mér leiðist. Ég er einmanna. Mig langar heim. Held að þetta sé í fyrsta sinn á ævi minni sem ég virkilega geri mér grein fyrir því hversu heppin ég er að eiga góða og heilbrigða fjölskyldu. Vá hvað ég sakna þeirra. Ég get ekki beðið eftir að fara í jólafrí og vera heima. Verst að ég þarf að koma aftur á vistina eftir áramót. Ég þoli ekki að vera hérna. Aldrei ýmindaði ég mér að þetta yrði svona slæmt. Ég man þegar ég var í svona 9. bekk, þá var minn æðsti draumur að fara á vistina. Ég fékk þann draum uppfylltan. Djöfull var þetta ömurlegur draumur, mér getur ekki einu sinni dreymt um góða hluti. Og þó.

Þessi dagur var náttúrulega líka frábær þar sem ég missti af æfingu vegna skólans. Jú það voru allir farnir á æfingu þegar ég var að klára skólann og komst því ekki. Á þessum stundum vildi ég óska þess að ég væri með bílpróf.

En eins og allt er nú slæmt og ömurlegt og líf mitt að fara í vaskinn þá hefur mig aldrei á ævinni hlakkað jafn mikið til jólanna. Ekki einu sinni þegar ég var lítil. Ég finn það bara á mér að þetta verða bestu jól sem ég hef átt. Þau verða líka að vera það því ég geri svo miklar væntingar til þeirra. Svo er Ólöf að fara til Danmerkur eftir áramót svo ég verð að nýta tímann með henni. Geri það allavega í vinnunni. Sem mér eiginlega hlakkar bara til að fara í. Djöfull ætla ég líka að vera sæt allt jólafríið. Ég er komin með svo mikinn viðbjóð af sjálfri mér eftir Noreg. Hef ekki séð meiri viðbjóð, nema kannski tvo. Sem eru mjög ljótir í dag. Haha.

En þetta er komið gott. Ég ætlaði að hafa þetta seinasta bloggið forever. En ég hætti við. Hvernig væri svo að gleðja mitt litla hjarta sem er í molum og kvitta í skoðanir. Nei ég bara spyr.

P.S  I’m digging this black shit!

Bless Þóra














» 8 hafa sagt sína skoðun

02.12.2006 20:04:24 / torabjorg

Munch

Núna er ég stödd á ágætis stað í lílfinu. Er í Noregi að skíða frá morgni fram á miðjan dag, kem heim og ét, muncha, spila mahjongg, muncha, ét, muncha, skelli einni ræmu í, muncha og sef. Eitthvað þess háttar já. Mér líkar þetta. Verst að ég þurfi að koma heim og láta alvöru lífsins taka við. Reyndar eru skíðin frekar mikil alvara, skólinn er þó kannski alvarlegri að sumu leyti. Þá er ég jú að meina prófin. Ætli jólafríið fari ekki mest í það að læra. Sjett ég er svo lélegur lygari. Ég get ekki einu sinni logið að sjálfri mér. Ég ætlaði að sjálfsögði að læra eins og þetta væri mitt síðasta, það hefur að sjálfsögðu ekki gengið eftir. Eina sem ég geri í rauninni á daginn er að hanga í tölvunni eða yfir ræmu og muncha. Ég elska mest í lífinu þessa stundina að muncha.

Núna fyrir stuttu vorum við Shalom einmitt að mahjongga og heyrum þá þetta tíst. bíb-bíbíb. Hvað í fjandanum ætli þetta sé. Læðumst hérna um herbergið og kíkjum inná bað. Er þá ekki þessi litli páfagaukur flögrandi um allt eins og hann ætti lífið að leysa og tístani. Við auðvitað kúkuðum yfir kynfæri okkar úr hræðslu, öskruðum eins og ljón, hlupum út á endahraða og önduðumst úr hlátri fyrir utan. Ég er enn með í maganum yfir þessu. Held við opnum ekki gluggan í bráð. Sem er reyndar verst fyrir Hall þar sam hún er alltaf on fire henni er svo heitt, en Tinni minn fær þá bara organice á meðan!

En ég held ég hafi þetta ekki lengra í bili, ætlaði bara að kasta góðri kveðju á ykkur. Lilja ég sakna þín, nennirðu að koma til mín með Jóni á morgun! Bless, Þóra fuglahræða.


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.11.2006 15:44:07 / torabjorg

Myndir!

Þá er aðeins vika í að ég yfirgefi land og þjóð í þrjár vikur. Djöfull hlakkar mér til. En ég er að fara til Noregs, þess kæra lands, og skíða. Ég get líka orðað þetta öðruvísi: Ég á aðeins 16 daga eftir í skólanum fram að jólafríi! Ég get ekki beðið eftir að komast heim.

Ég var búin að skrifa hérna heljarinnar lesningu um klaufavillu og svefnleysi. Las það svo, og dó í leiðinni. Ég get ekki látið það sama gerast fyrir ykkur.

Hinsvegar, eða ekki hinsvegar, er ég komin með vinnu í jólafríinu. Olla systir reddaði manni auðvitað inn í Zöru. Ánægð með hana. Reyndar byrja ég bara inn á lager, en einhverstaðar verður jú ferillinn að byrja. Hver veit nema ég verði komin út í búð eftir nokkra daga og selji eins og viltur sebrahestur. En það er nokkuð ljóst að minn tími er kominn. Ferill minn í tískuheiminum hlaut að hefjast fljótlega.

Annars stefnir þetta held ég í góða helgi. Vissulega mikið að gera og þar á meðal hellings lærdómur og kleinubakstur en jafnramt gott laugardagskvöld. Stefnan er sett á Sjallann. Vonandi að það fari vel. Annars verð ég klikkuð.

Ég setti inn myndir eins og ég lofaði. En þó ekki allveg þær sem ég lofaði en þessar eru samt frá Austurríki. Bara mun leiðinlegri en þær sem ég ætlaði að setja. En þær koma við betra tækifæri.

Djöfull var þetta ljótt blogg. Bless Þóra

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.11.2006 20:09:44 / torabjorg

Já ég mundi núna halda að nú væri kominn tími til að blogga á ný. En ég er búin að gera ýmislegt síðan síðast. Ég segi nú bara sem betur fer þar sem það er meira en mánuður síðan.

Ég fór einmitt til Austurríkis 20. okt og var þar í 10 daga. Það var allveg hreint mögnuð ferð og átti maður góðar stundir þar. Maður hefur nú kannski séð meiri snjó, en ég var þar einmitt til þess að skíða eins og dyggir lesendur hljóta að vita, en það var þó í lagi. Veðrið kom upp á móti snjóleysinu og orsakaði því jafnvel líka. Þegar sólin skein sem var svona meirihlutann af ferðinni var örugglega um 20 stiga hiti og logn, geggjað. Strandblakið var stundað stíft eftir æfingar og spurning í hvoru manni hafi farið meira fram, á skíðunum eða í stranblaki ? En meðferðis í ferðinni voru líka miklir og sannir snillingar svo maður var ófáa tímana grenjandi úr hlátri á meðan aðrir gáfu manni blóðnasir. haha. Við kvenkynið vorum einmitt mjög heppnar líka þar sem slóvenskir skíðastrákar eru með þeim heitari sem sést hafa og fór mikill tími í að horfa á þá! En við Tinna fengum líka góða spurningu frá e-m gaurum, jú við vorum spurðar hvort við værum eskimóar þegar við sögðumst vera frá Íslandi. Besta spurning sem ég hef fengið í langan tíma. En já ég get með sanni sagt að þetta hafi verið góð ferð!

Nú er hins vegar komið vetrarfrí í skólanum. Ég er svosum ekkert á því að kalla þetta frí, því þetta verður líklega lærdómsríkasta helgi vetrarins. Ég gat að sjálfsögðu ekki drullast til að læra úti svo ég er svolítið á eftir. En það er ekki eina því það er haugur af skilaverkefnum í vændum sem er betra að klára meðan tími gefst. En ég ætla einmitt að skreppa til Dalvíkur til ömmu og afa í dekurs og lærdómsferð. Vá hvað það verður gott.

En ég hyggst henda inn myndum frá Austurríki þegar þær koma í hús, sem verður vonandi fljótlega. Hef þetta ekkert lengra í bili.

Bless, Þóra





» 5 hafa sagt sína skoðun

25.09.2006 21:42:39 / torabjorg

TALIP?!?

Reyndi að hafa mök við broddgölt

Serbneskur maður þurfti að leita læknis eftir að hann hafði reynt að hafa mök við broddgölt samkvæmt ráðleggingum galdralæknis. Maðurinn, sem býr í Belgrad, leitaði til galdralæknisins vegna þess að hann átti vanda til of bráðs sáðláts og fékk þetta undarlega ráð. Hann reyndi að fara eftir því en kom nokkru síðar á sjúkrahús skorinn og blóðugur og með broddgaltanálar fastar í sér. Talsmaður sjúkrahússins segir að tekist hafi að tjasla manninum saman og hann ætti að ná sér. Þá segir talsmaðurinn að hann viti ekki annað en broddgölturinn hafi sloppið ómeiddur.
(Tekið af www.mbl.is)

Þetta er án nokkurs vafa besta frétt sem ég hef á ævi minni lesið! ég hreinlega varð að leyfa ykkur að njóta hennar með mér.

Annars var ég að rifja upp gamla tíma. Hann Talip, tyrkneskan góðvin minn. Sem reyndar er horfinn úr mínu lífi, en hann var góður maður og vildi fólki ekkert nema allt það besta. Stórfenglegur náungi. Þetta sagði ég þó ekki þá, þá langaði mér mest af öllu að aflífa manninn með öllum illum ráðum. En ég held að hann hafi ofsótt mig smávegis. En ég elska hann. Mest af öllu sakna ég hans þó. Talip, ef þú lest þetta, hafðu þá upp á mér aftur, nú skal ég vera góð.

Nenni ekki að blogga meira. Reyndar nenni ég því, hef bara ekkert til að punga út úr mér. Nú fer ég að safna fyrir næsta blogg.

bless, þóra

Kannski ég setji eina góða frá helginni. Alltaf jafn helvíti myndarlegar.


» 10 hafa sagt sína skoðun

12.09.2006 20:47:22 / torabjorg

Vistin

Þá er maður fluttur á vistina. Byrjaði á því að bíða í lítilli röð sem valla hreyfðist, en þetta hafðist. Herbergið er illa krúttlegt. Veit ekki með nýja félagann. Hún hefur ekki látið sjá sig. Ég er búin að vera að farast úr stressi í hvert skipti sem ég labba inn í herbergið í dag. Það verður svo kjánalegt að mæta þarna og þar er manneskja sem þú hefur aldrei séð áður en átt eftir að búa með næsta árið. Þar að auki verður hún bandbrjáluð og afhausar mig líklegast vegna þess að ég valdi betra rúmið og betri skápinn. Fyrstur kemur fyrstur fær - ekki rétt ? Annars hlakkar mig helling til þess að hitta hana og hrinda áætluninni í framkvæmd og eignast fyrstu nýju vinkonuna. Vonandi gengur þetta.

Afmælið er á morgun. Segi betur frá því seinna, jafnvel á morgun.

Nenni eiginlega ekki meiru í dag. Langaði bara að segja smá frá nýja heimilinu sem ég er strax farin að elska.

Bless, Þóra


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.09.2006 23:52:07 / torabjorg

Kvöldið

Ég er að verða klikkuð. Þetta er í þriðja skiptið sem ég byrja á sama blogginu! Sem betur fer virðist það fara batnandi eftir hver skipti. Djöfull hefur það þá verið lélegt í byrjun.

Móði kom í gærkvöldinu. Hún keyrði í bæinn til þess eins að fara í afmæli og djamma. Ég er stollt af henni. Að sjálfsögðu kom hún færandi hendi. Þar sem maður á nú afmæli í næstu viku kom hún auðvitað með pakka. Mér var auðvitað bannað að taka þá upp, verð að bíða þar til á afmælisdaginn, þann 13. Nývöknuð í morgun var heldur erfitt að halda aftur af sér. Ég var búin að þreyfa á pökkunum líkt og sjö ára hnáta. Ólíkt sjö ára hnátunni var ég mjög ánægð með að þeir voru allir mjúkir. Ég er orðin svo þreytt á þessu harða. Enda virðist ég aldrei fá neitt hart lengur - bamm bamm! Lilja þú náðir þessum? haha hann var reyndar góður. En til allrar hamingju var einum pakkanum pakkað inn í svona skemmtilegan pappír sem að rifnar ekki þegar límið er tekið af. Ég byrjaði að losa límið og sá þennan geggjaða bol sem ég virkilega gleymdi að kaupa mér seinast þegar ég var í borginni. Ég tók hann úr pappírnum, mátaði hann til að tékka hvort stærðin væri ekki pottþétt rétt og setti hann svo varlega aftur í pappírinn og lokaði fyrir.

Ég sit heima að passa núna. Vildi eiginlega að ég væri í móða sporum. Langar svo að gera eitthvað skemmtilegt. En það verður næstu helgi.

Ég held að ég skelli bara inn nokkrum vel völdum myndum og hafi mig svo hæga.

Djöfull vorum við krúttlegar, í  9. bekk ?

Til allrar hamingju hafa menn breyst!

Þetta voru góðir tímar - 10. bekkur.

Já, 10. bekkur var góður

Verst að ég er ekki lengur svona.

Bless í bili, Þóra.


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Bloggarinn eini